Fótaaðgerð
Fótaaðgerð er löggild heilbrigðisgrein og því tilheyra fótaaðgerðafræðingar heilbrigðisstéttum og njóta lögverndaðs starfsheitis.Margir rugla saman fótaaðgerðafræðingi og snyrtifræðingi en báðir fást þeir við almenna fótsnyrtingu þ.e. meðhöndlun á heilbrigðum fótum. Í fótaaðgerð eru meðhöndluð ýmis fótamein s.s. niðurgrónar neglur, líkþorn, sprungnir hæla, sveppir og vörtur. Þá hafa fótaaðgerðafræðingar menntun til að veita margvíslega ráðgjöf um velferð fóta og leiðbeiningar um val á skóm.
Fótaaðgerðastofan á Heilsuhvoli annast allar almennar fótaaðgerðir, spangameðferðir, hlífðarmeðferðir, vörtumeðferðir og umönnun fóta sykursjúkra og annarra áhættuhópa.