Nálastungur

Nálastungur eru heildræn meðferð sem beitt er gegn langvarandi veikindum jafnt sem bráðaveikindum og meiðslum.

Markmið meðferðarinnar er að vinna á orsök þess ójafnvægis sem myndast hefur í líkamanum. Nálum er stungið í punkta sem liggja víðsvegar um líkamann, oftast eru notaðir frá einum upp í fimm punkta í hverri meðferð.

Hversu mörg skipti komið er í fer eftir því hve lengi veikindin hafa varað. Yfirleitt er nóg að koma einu sinni til tvisvar í mánuði eða jafnvel sjaldnar.

Þegar unnið er með börn eru ýmist notaðar nálar eða punktarnir nuddaðir.

Andlitsnálastungur/andlitslyfting