Kinesiologia - vöðva- og hreyfifræði.

Kinesiologia er tækni sem tengir vöðvakerfi líkamans kínverska nálastungu-kerfinu.
Kinesiologia er byggð upp á heildrænni sýn á manneskjuna og að heilbrigði komi innan frá.
Litið er á líkamann sem orkuflæði, með ákveðnum orkubrautum sem tengdar eru líffærum, vöðvum og vefjum.
Kinesiologia gengur út frá því að við séum í jafnvægi, andlega og líkamlega og þá líði okkur vel.
En komi stífla í orkuflæðið, þá byrjum við að fá verki og kvilla, sem síðan geta orðið að krónískum sjúkdómum ef ekkert er að gert.
Í kinesiologiu er talað um að djúpa orkuflæðið liggi í og á milli líffæra, en grunna orkuflæðið í orkubrautunum sjálfum sem liggja utan á líkamanum.
Orkubrautirnar eru 14, einnig eru fimm element eða stöðvar sem unnið er út frá.
Í kinesiologiu er unnið með jafnvægi yin/yang.