Hómópatía
Hómópatía er heildræn meðferð sem miðar að því að koma á jafnvægi einstaklingsins til líkama og sálar með því að virkja hans eigin lækningamátt.Meðferðin hefst á ítarlegu viðtali þar sem viðkomandi greinir frá líkamlegu, tilfinningalegu og andlegu ástandi sínu. Viðtalið miðar að því að finna remedíu sem gagnast til þess að koma jafnvægi á manneskjuna.
Lengd meðferðar getur verið eins breytileg og einstaklingarnir eru margir. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því mun lengri tíma má búast við að meðferðin taki.
Remedía er heiti yfir þau efni sem hómópatar nota. Þau eru unnin úr jurta-, dýra- og steinaríkinu og eru það mikið þynnt að ekki er lengur talað um eiginlegt efni heldur hvata.
Flest höfum við upplifað táraflóð sem fylgir því að skera lauk, sviða og óþægindi í augum og nefi, sem líkjast einkennum frjókornaofnæmis. Því er það að remedía búin til úr lauk hefur oft reynst vel í slíkum tilfellum.
Þetta byggir á lögmálinu „Similia similibus curentur“ líkt læknar líkt.