Alexandertækni
Alexandertækni er aldargömul líkamsbeitingartækni.Hún er einskonar endurmenntun líkamans þar sem lært er að losa sig við ávana sem geta haft og eru oft orsök margra kvilla. F.M.Alexander(1869-1955) er faðir þessarar greinar og hóf hann þróun tækninnar þegar hann missti röddina eftir langvarandi slæma líkamsbeitingu.
Alexandertækni er ekki meðferð heldur kennsla, endurmenntun. Kennslan beinist að því að losa um óþarfa spennu og ávana í líkamsbeitingu og læra meiri meðvitund um líkamann.
Með aukinni meðvitund getum við sjálf aukið okkar eigin vellíðan. Kennt er í einkatímum og tekur hver kennslustund um 45 mín.
Tæknin er mikið notuð af leikurum, söngvurum, hljóðfæraleikurum, fólki með háls-/bakverki/stoðkerfiskvilla/gigt, ófrískum konum og þeim sem vilja nota hana sem forvörn.
Aðferðin nýtist öllum sem kenna eymsla vegna rangra vinnustellinga, eymsla vegna síendurtekinna hreyfinga, gegn stressi og því sem getur fylgt því s.s. svefnleysi, háum blóðþrýstingi, meltingartruflunum o.s.fr.
Alexandertækni er einnig mjög góð fyrir ófrískar konur, hvort sem um er að ræða fyrir eða eftir fæðingu.
Aðferðin hentar öllum á aldrinum 6-106 ára!