Alexandertækni

Líkaminn endurmenntaður
Alexandertækni er aldargömul líkamsbeitingartækni sem miðar að því að losa um óþarfa spennu og ávana í líkamsbeitingu. Oft hefur aðferðinni verið lýst sem eins konar endurmenntun líkamanns. Lögð er áhersla á að kenna fólki að losa sig við ávana sem geta orsakað eða eru orsök ýmis konar kvilla svo sem svefnleysis, verkja, blóðþrýstingshækkunnar, meltingartruflana og annars sem fylgt getur röngum stellingum, streitu og endurteknum hreyfingum. 

Osteópatía

Bland hefðbundinna og óhefðbundinna lækinga
Osteópatía er líkamsmeðhöndlunarkerfi upprunnið frá Bandaríkjunum og er hún sambland af hefðbundnum og óhefðbundum lækningum. Oft hefur þessari tækni verið líkt við bland af störfum sjúkranuddara, hnykkjara og fleiri meðferðaraðila. Þeir sem tæknina kunna eiga að geta greint og meðhöndlað ýmis líkamleg vandamál í gegnum vöðva- og liðkerfi líkamans með því að meta hreyfanleika og virkni liðamóta og vöðva. Kenningarnar ganga miðast við heilsa liðamóta og vöðva sé mikilvægur þáttur í alhliða heilsu einstaklingsin og með því að beita viðeigandi og vandlega framkvæmdri líkamsmeðhöndlun á líkamanum náust fram jákvæðar breytingar hið innra. 

Ilmkjarnaolíur

Lyfjaskápur náttúrunnar
Saga ilmkjarnaolía og notkun þeirra á líkamann nær langt aftur í aldir. Álitið er að þekking Kínverja á ilmolíum nái allt aftur til fimm þúsund ár fyrir Krist. Í Biblíunni er talað um tólf helgar olíur. Egyptar notuðu ilmkjarnaolíur til lækninga. Grikkir notuðu kraftinn úr plöntunum í ilmböð, ilmnudd og til að græða sár og litu á ilmkjarnaolíur sem “ lyfjaskáp náttúrunnar”. Þær voru notaðar til varnar gegn andlegu og líkamlegu ójafnvægi. Franski efnafræðingurinn Réne Maurice Gattefosse er talinn faðir nútíma ilmkjarnaolíumeðferðar í Evrópu. Hann sá að mismunandi olíur höfðu t.d. sótthreinsandi eða bólgueyðandi áhrif á líkmann. Í dag eru stundaðar vísindalegar rannsóknir á efnum sem ilmkjarnaolíurnar innihalda. Rannsóknir hafi sýnt fram á að ilmkjarnaolíur geti aðstoðað fólk við að viðhalda andlegu og líkamlegu jafnvægi. Með því að nudda líkamann upp úr ilmkjarnaolíum eiga skynfærin að virkjast og efni olíunnar að dragast inn í sogæða- og blóðrásarkerfið og hafa þannig áhrif á líkama og sál. 

Heilsunudd

Bland af því besta í nuddinu
Heilsunudd nær yfir margar mismunandi nuddaðferðir til dæmis það sem kallað hefur verið klassískt nudd, íþróttanudd, heildrænt nudd, svæðanudd, sogæðanudd, kinesiologiu auk fleiri tegunda.  Gott nudd á að draga úr vöðvaspennu og bólgum. Það þykir auk þess gefast vel við að draga úr streitu en hún er af mörgum talin vera ein aðalorsök nútímasjúkdóma. Það á að auka hreyfigetu fólk og auk vellíðan þess. 

Hómópatía

Smáskammtalækningar
er heildræn einstaklingsbundin meðferð með það að markmiði að virkja sjálfslækningamátt líkamans. Hómópatía nýtur vaxandi vinsælda á Íslandi meðal allra aldurshópa og bæði karla og kvenna. Í stuttu máli snýst hómópatía um að koma á jafnvægi milli líkama og sálar og efla eigin lækningamátt. „Lyf“ hómópata eru kölluð remedíur. Þær eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu. Þær eru það mikið þynntar að ekki er lengur talað um eiginlegt efni, heldur hvata. Þegar farið er til hómópata hefst meðferðin á viðtali þar sem fólk segir ítarlega frá líkamlegu og andlegu ástandi sínu. Út frá því sem þar kemur fram meðhöndlar hómópatinn einstaklinginn með remedíum.

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð

Skekkjur nútímamannsins leiðréttar
Aðferðin hefur notið mikilla vinsælda í hinum vestræna heimi á síðustu árum rétt eins og hómópatían.
Fræðin ganga í stuttu máli út á að greina ójafnvægi í höfuðbeina- og spjaldhryggjar kerfinu og leiðrétta það. Unnið er með og losað um spennu, samgróninga og bólgur í öllu bandvefs- og himnukerfi líkamans. Meðferðin eykur orku og vökvaflæði líkamans, en er einnig notuð til þess að losa um bældar tilfinningar sem tengjast spennu í vefjum hans.

Kinesiologia

Orkubrautir líkamans í nudd
Kinseiology byggir á kínverskum nátturuvísindi og hugmyndafræði Ying og Yang. Meðferðin minnir um margt á nálastungur á orkubrautum líkamans en munurinn felst aðallega í því að ekki að þrýst á svæðin með nálum heldur fingurgómum. Markmiðið sé að koma jafnvægi á þessar orkubrautir líkamans, örva heilbrigði líffæra og þar með koma í veg fyrir sjúkdóma og verki.

Nálastungur

Hefðbundnu óhefðbundnu lækingarnar
Langt er síðan vesturlandabúar kynntust nálastunguaðferðinni sem ættuð er frá Kína. Markmið meðferðarinnar er að vinna á orsök  ójafnvægis sem myndast hefur í líkamanum með því að stinga nálum í punkta sem liggja víðsvegar um líkamann. Grunnhugmynd þessara fræða er sú að orka líkamans stjórni starfsemi líffæra og annarri líkamsstarfsemi. Þessi orka hefur verið nefnd chi í austurlenskum fræðum. Til að líkami og sál séu í jafnvægi þarf hún að geta flætt óhindruð um hann. Þetta flæði getur raskast ef upp koma veikindi eða ef áföll dynja yfir. Nálastungufræðingurinn hlustar eftir orkuflæði líkamans á ákveðnum púlsum. Þegar meðferðin byrjar að hafa áhrif er talað um að líkami sjúklingsins vakni og hann leitast  við að ná jafnvægi.

Undirmeðvitundarfræði (NLP)

Samtal og nudd
Undirmeðvitundarfræði, NLP (Neuro Linguistic Programming) er byggt á þeirri hugmyndafræði að öll hegðun hafi ákveðið mynstur og að þetta mynstur sé hægt að tileinka sér, læra og breyta því. Það má því segja að NLP séu fræði hegðunarmynstra og allra þeirra ótal anga sem frá þeim liggja. Með NLP er hægt að átta sig á sínu eigin mynstri svo og annara. NLP veitir manni hæfileika til þess að sjá fyrir hegðun og að stjórna hegðun. Með NLP tileinkar maður sér sveigjanleika, skilvirkni og öðlast í leiðinni aukna möguleika fyrir sjálfan sig í lífinu og einnig fyrir aðra.

Svæða- og viðbragðsfræði

Fæturnir eru undirstaða líkamans
Svæðameðferð byggir á þeirri kenningu að sérhvert líffæri og líkamssvæði eigi sér samsvörun í áhrifasvæði á fótum. Sama gildir um hendur, allur líkaminn á sér áhrifasvæði á höndum. Meðferðin byggir á því að mismunandi punktar á fótum eru nuddaðir eftir því hvaða líkamsstarfsemi á að hafa áhrif á. Í svæðameðferð er líkamanum skipt kerfisbundið í  svæði sem síðan eru kortlögð á fótum sem áhrifasvæði. Svæða- og viðbragsmeðferð hefur verið kölluð list snertingar, skynjunar og næmni og má rekja rætur hennar þúsundir ára aftur í tímann. Aðferðin er sögð árangursrík til að ná fram slökun og vellíðan, auka orkuflæði líkamans og styrkja hann þar með til sjálfshjálpar. 

Sjúkranudd

Mjúkvefir líkamans í góðum höndum
Sjúkranudd er meðhöndlun á mjúkvefjum líkamans í lækningaskyni. Mjúkvefir eru vöðvar, sinar, liðbönd, húð og himnur.
Sjúkranudd er löggilt heilbrigðisstarfsgrein sem kennd er á háskólastigi erlendis. Klassískt nudd og líkamsskoðun eru grunnurinn í sjúkranuddi en öðrum aðferðum er einnig beitt s.s. teygjum, losun trigger punkta, bandvefsnuddi /losun, liðleik, vatnsmeðferðum, heitum og köldum bökstrum, bjúgmeðferð, fræðslu og fleiru.