Naturópatía

Hvað er naturópatía?
Natúrópatía er náttúrulegt heildrænt kerfi til heilsueflingar, þar sem megináhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðferðir til að styrkja og efla eigin lækningarmátt líkamans.  Hún spannar víðtæk greiningar- og meðferðarform sem nýtast í ráðgjöf og meðferð, sem sniðin er að ólíkum þörfum hvers og eins.  Aðferðafræðin byggir á mismunandi náttúrulegum aðferðum við að leysa hin ýmsu heilsufarsvandamál, leitast er við að koma manneskjunni í jafnvægi og að finna rót vandans. Einungis eru notaðar náttúrulegar aðferðir og efni eins og jurtir, ilmolíur, blómadropar, nudd, bakstrar, vatn, hiti ofl.  Áhersla er lögð á að hver og einn taki ábyrgð á eigin heilsu og lífsstíl með heilbrigðri og skynsamlegri, næringu og hreyfingu.    

Hvað gerir naturópati?
Naturópati stundar heildrænar náttúrulækningar.  Hlutverk hans er m.a. að fræða fólk og ráðleggja því um aðferðir til að ná betri tökum á eigin heilsu.  Ráðgjöfin felst í því að leiðbeina viðkomandi,  jafnt hvað varðar líkamalega sem andlega heilsu, með áherslu á alla heildina þar sem leitast er við að ná heildarjafnvægi.      

Leiðarljós naturópatans:
Valda aldrei nokkrum skaða; leggja áherslu á lækningarmátt náttúrunnar; finna rót vandans; meðhöndla alla manneskjuna (ekki bara sjúkdóminn); beita fyrirbyggjandi aðferðum; vera uppbyggjandi fræðari.

Meðferðin sjálf
Þegar leitað er til naturópata er byrjað á viðtali og ítarleg heilsufarsskýrsla útbúin. Í boði er fyrir þá sem það vilja lithimnu- og hvítugreining, sem veitir frekari innsýn og auðveldar mat á heilsufarsástandi. Í framhaldi eru gefnar ráðleggingar um næstu skref sem felast í einstaklingsmiðaðri meðferð.  Oftast er útbúin þriggja mánaða meðferðaráætlun undir leiðsögn naturópatans.  Í meðferðinni er lögð áhersla á að hreinsa líkamann (detox), næringu og mataræði, markvissa hreyfingu, uppbyggingu og endurnýjun lífsorkunnar. 

Hver og einn einstaklingur fær viðeigandi jurtir, ilmolíur, blómadropa ofl.  ásamt uppskriftum og ráðleggingum  um mataræði.  Haldin er dagbók svo hægt sé að fylgjast nákvæmlega með framvindu mála.