DagnýElsa

Dagný E. Einarsdóttir

Hómópati LCPH, Skráður græðari

Dagný nam hómópatíu við The College of Practical Homoeopathy, í Bretlandi, 1993-1998, og hefur starfað sem hómópati síðan. Í desember 2007 lauk hún námi í ráðgjöf hjá Ráðgjafaskóla Íslands.

Hún er einn af stofnendum Organon fagfélags hómópata og var formaður þess frá stofnun til 2005. Hún átti sæti í stjórn Bandalags íslenskra græðara frá 2001-2003 og var varaformaður þess frá 2003-2005.

Hún er félagi í Organon fagfélagi hómópata og er í Bandalagi íslenskra græðara.

Frá 2003 átti Dagný sæti í nefnd á vegum heilbrigðisráðherra, sem vann tillögur að frumvarpi til laga um stöðu græðara.

Hún rekur einnig fyrirtækið Erda ehf., sem framleiðir íslenskar húðvörur sem einungis innihalda lífræn og lítið unnin efni m.a. íslenskar jurtir.

Tímapantanir í síma: 551 0583, 511 1000.
Netfang: skottulaeknir@simnet

Forföll skulu tilkynnt með minnst sólarhrings fyrirvara.

Verðskrá
Hómópatía - Fullorðnir:
Fyrsti tími: kr. 8.000 (tekur um 60-70 mín)
Framhaldstímar: kr. 6.000 (tekur um 20-30 mín)
Hómópatía - Börn:
Fyrsti tími: kr. 6.000 (tekur um 40-50 mín)
Framhaldstímar: kr. 4.000 (tekur um 20-30 mín)
Eldri borgarar og öryrkjar eru á sömu verðskrá og börn

Mörg stéttarfélög niðurgreiða heimsókn til hómópata. Kannaðu hvernig niðurgreiðslum er háttað hjá þínu stéttarfélagi.