Anna Birna Ragnarsdottir

Anna Birna Ragnarsdóttir

Hómópati LCPH, Skráður græðari

Anna Birna nam hómópatíu við The College of Practical Homoeopathy, í Bretlandi, 2000-2004, og hefur starfað sem hómópati síðan.  Í maí 2006 lauk hún námi í hvítugreiningu (Sclerology) frá Grand Medicine. Í desember 2007 lauk hún námi í ráðgjöf hjá Ráðgjafaskóla Íslands. Frá því að hún útskrifaðist sem hómópati hefur hún sótt ýmis námskeið, til að viðhalda og auka kunnáttu sína.

Hún átti sæti í stjórn Organon fagfélagi hómópata frá 2003 og var formaður þess frá 2005-2010 og einnig formaður Bandalags íslenskra græðara frá 2005-2008.
Hún er félagi í Organon fagfélagi hómópata og er í Bandalagi íslenskra græðara.

Tímapantanir í síma: 846 6382.
Netfang: anna.homopati@gmail.com

Forföll skulu tilkynnt með minnst sólarhrings fyrirvara.

Gerast aðdáandi Önnu Birnu hómópata á Facebook, smella hér.

Verðskrá
Hómópatía - Fullorðnir:
Fyrsti tími: kr. 8.000 (tekur um 60-70 mín)
Framhaldstímar: kr. 6.000 (tekur um 30-40 mín)
Hómópatía - Börn:
Fyrsti tími: kr. 6.000 (tekur um 40-50 mín)
Framhaldstímar: kr. 4.000 (tekur um 20-30 mín)
Eldri borgarar og öryrkjar eru á sömu verðskrá og börn

Mörg stéttarfélög niðurgreiða heimsókn til hómópata. Kannaðu hvernig niðurgreiðslum er háttað hjá þínu stéttarfélagi.