Margrét Jónsdóttir
Hvað er naturópatía?
Natúrópatía er náttúrulegt heildrænt kerfi
til heilsueflingar, þar sem megináhersla er lögð á
fyrirbyggjandi aðferðir til að styrkja og efla
eigin lækningarmátt líkamans. Hún
spannar víðtæk greiningar- og meðferðarform sem
nýtast í ráðgjöf og meðferð, sem sniðin er
að ólíkum þörfum hvers og
eins. Aðferðafræðin byggir á mismunandi
náttúrulegum aðferðum við að leysa
hin ýmsu heilsufarsvandamál, leitast er við að
koma manneskjunni í jafnvægi og að finna rót vandans.
Einungis eru notaðar náttúrulegar aðferðir og efni
eins og jurtir, ilmolíur, blómadropar, nudd, bakstrar,
vatn, hiti ofl. Áhersla er lögð á að
hver og einn taki ábyrgð á eigin heilsu og
lífsstíl með heilbrigðri og skynsamlegri, næringu
og hreyfingu.
Hvað gerir naturópati?
Naturópati stundar
heildrænar náttúrulækningar. Hlutverk hans
er m.a. að fræða fólk og ráðleggja því um aðferðir til
að ná betri tökum á eigin heilsu. Ráðgjöfin
felst í því að leiðbeina viðkomandi, jafnt
hvað varðar líkamalega sem andlega heilsu, með áherslu
á alla heildina þar sem leitast er við að
ná heildarjafnvægi.
Leiðarljós naturópatans:
Valda aldrei nokkrum skaða; leggja áherslu á
lækningarmátt náttúrunnar; finna rót vandans;
meðhöndla alla manneskjuna (ekki bara
sjúkdóminn); beita fyrirbyggjandi aðferðum; vera
uppbyggjandi fræðari.
Meðferðin sjálf
Þegar leitað er til naturópata er byrjað á
viðtali og ítarleg heilsufarsskýrsla útbúin. Í boði er
fyrir þá sem það vilja
lithimnu- og hvítugreining, sem veitir frekari
innsýn og auðveldar mat á heilsufarsástandi.
Í framhaldi eru gefnar ráðleggingar um næstu
skref sem felast í einstaklingsmiðaðri
meðferð. Oftast er útbúin þriggja mánaða
meðferðaráætlun undir
leiðsögn naturópatans. Í meðferðinni er
lögð áhersla á að hreinsa líkamann (detox),
næringu og mataræði, markvissa
hreyfingu, uppbyggingu og endurnýjun lífsorkunnar.
Hver og einn einstaklingur fær viðeigandi jurtir, ilmolíur,
blómadropa ofl. ásamt uppskriftum
og ráðleggingum um mataræði. Haldin
er dagbók svo hægt sé að fylgjast nákvæmlega með
framvindu mála.
Meðferðir í boði hjá Margréti
Fæðu- og næringarleiðsögn
Felst í því að leiðbeina varðandi
fæðuval, fræða um næringargildi og lækningarmátt
fæðunnar og benda á hvaða samsetning og áherslur séu
æskilegastar í hverju einstaka tilfelli.
Lifandi fæði
Lifandi fæði er ákveðið afbrigði af
“heilsufæði”, það er bæði grænmetisfæði og hráfæði en
í raun mikið meira. Hugmyndafræðin gengur
út á rétta samsetningu fæðunnar, sem samanstendur
af grænmeti, ávöxtum, baunum, kornmeti og fræum,
hnetum, grösum, jurtum og sölvum. Allt
hráefnið er lífrænt og hrátt þar sem mikil
áhersla er lögð á lifandi blaðgrænu eins og t.d. úr
hveitigrasi. Sérstök áhersla er lögð á varðveislu
næringarefnanna, lífsorka fæðunnar er
endurvakin með t.d. spírun, blöndun og
gerjun. Til að ensím og næringarefni nýtist
til fullnustu er fæðan aldrei hituð. Þetta er
mjög heilandi fæði, stútfullt af
orku.
Hreinsun, uppbygging, endurnýjun
Þessi meðferðarhluti gengur út á að hreinsa
og afeitra (detox) líkama og hug, losa hann við gamlar
óæskilegar birgðar. Eftir hreinsunarátakið er
líkaminn móttækilegur fyrir næsta skrefi þar sem
áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða ofurnæringu og
markvissa hreyfingu. Með áframhaldandi
umbreytingu endurnýjast lífsorkan.
Jurtablöndur, tinktúrur, smyrsl ofl.
Einstaklingsmiðaðar jurtablöndur,
tinktúrur og smyrsl sem eru að mestu leyti unnar úr
villtum íslenskum lækningarjurtum.
Lithimnu- og hvítugreining
Lithimnan gefur mynd af innra
vistkerfi líkamans hún segir til um ástand hans,
veikleika og styrkleika. Lithimnugreining er fyrst og
fremst tæki til að meta heilsuna en ekki til
að sjúkdómsgreina. Hvítugreining felst í því
að lesa í liti og línur hvítu augans þar sem hægt er
að fá vísbendingu um álag og
ástand núverandi heilsu.
Teknar eru myndir af lithimnum og hvítum og
þær stækkaðar upp og skoðaðar og greindar.
lmolíublöndur
Ilmkjarnaolíur eru framleiddar úr
plöntum, t.d. blómum, laufum, berjum, rótum, berki,
fræjum og ávöxtum, oftast með eimingu eða kaldpressun.
Til þess að hægt sé að kalla ilmkjarnaolíu
hágæðaolíu þarf allt ræktunar- og framleiðsluferlið að
fullnægja ýtrustu kröfum um
gæði. Ilmkjarnaolíur hjálpa fólki
að viðhalda andlegu og líkamlegu
jafnvægi. Olíurnar hafa mismunandi virkni
t.d. sótthreinsandi, bólgueyðandi,
róandi, örvandi, græðandi, vatnslosandi
osfrv. Einnig geta þær haft róandi eða
örvandi áhrif jafnt líkamlega eða andlega. Þær er hægt
að nota á ýmsa vegu, á húð, til innöndunar, eða til
inntöku. Ilmkjarnaolíurnar eru mjög kraftmiklar og
þess vegna ber að fara varlega með þær.
Blómadropar
Blómadropar eru hlaðnir kröftum og
tíðni frá blómum og jurtum. Þeir eru
fullkomlega öryggir, náttúrulegir og framleiddir við
bestu hugsanlegu aðstæður af alúð, kærleika og
vandvirkni. Blómadropar raska ekki öðrum hefðbundnum
lækningum og þeir koma ekki í staðinn fyrir þær. Þeir
auka getuna til að takast á við áskoranir eða
erfiðleika lífsins og hæfnina til að vinna úr þeim. Þeir
geta haft góð áhrif á; svefn, kvíða, aukin og betri
samskipti og tjáningu, bætta sjálfsmynd, dýpra innsæi
og vitund, hugrekki og trú, ákveðni og markmið,
kyrrð og samkennd með lífinu, losun við fíkn o.fl.
Heildrænt nudd
Heildrænt nudd er algerlega
einstaklingsmiðað oftast unnið djúpt í þeim tilgangi að
losa um spennu og jafnvel tilfinningaójafnvægi.
Sogæðanudd
Aðalávinningur nuddsins er að hraða
hreinsun úrgangsefna úr líkamanum, vinna gegn
óæskilegri vökvasöfnun, ásamt því að gefa góða slökun.
Svæðanudd
Á fótum og höndum eru viðbragðssvæði tiltekinna
líffæra. Þrýstinudd á þessi svæði stuðlar
að endurnýjun lífsþróttar og eflingu
sjálfshjálparhæfni líkamans. Svæðanuddið eykur
orkuflæði líkamans, en er jafnframt árangursrík til að
ná fram slökun og vellíðan.
Djúptengslameðferð
Afbrigði af svæðanuddi sem hefst með
fótabaði sem í eru olíur, jurtir og
sölt. Létt en djúp og hæg snerting á fætur
og leggi.
Total reflexology
Total reflexology er ákveðin
tegund af svæðanuddi þar sem notast er við áherslur
t.d. úr höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, aðallega
er unnið á höndum, fótum og höfði en
áhrifanna gætir um allan líkama. Sérstök
áhersla er lögð á meðhöndlun ýmissa heilasvæða
jafnframt því sem leitast er við að
koma á jafnvægi milli sjálfráða- og ósjálfráða
taugakerfisins.
Meðgöngunudd
Nudd fyrir konur á meðgöngu. Er með sérhannaðan
nuddbekk sem hentar barnshafandi konum.
Djúpvefjalosun (Myofascial Release)
Áhrifarík nuddaðferð þar sem djúpum
þrýstingi er beitt í þeim tilgangi að auka flæði,
minnka verki og auka hreyfigetu í stirðum bandvef,
hefur bætandi áhrif á líkamsstöðu.
Maganudd (Chi-Nei-Chang)
Austurlenskt nudd þar sem maga- og
kviðarholsvæðið er meðhöndlað sérstaklega.
Tilgangurinn er að virkja ákveðnar orkubrautir,
losa um spennu í kviðarholi og hleypa þannig orku
í nærliggjandi líffæri.
Slökunarnudd
Djúpt og mýkjandi nudd sem veitir slökun
og vellíðan. Hefur víðtæk áhrif á
vöðva líkamans og almenna líðan.
Trigger-punktanudd
Triggerpunktur er spenntur vefjaþráður- eða
hnútur sem veldur sársauka í vöðva. Með djúpum
þrýstingi og togi á triggerpunktinn er verið að losa
um viðkvæma sára vefjaþræði sem valda sársauka vegna
taugaleiðni.
Vöðva- og hreyfifræði (Kinesiology)
Vöðva- og hreyfifræði er kínversk
aðferðafræði sem notuð er til að koma jafnvægi
á orkubrautirnar, sem tengdar eru líffærum,
vöðvum og vefjum. Í þessari aðferðafræði
er notast við vöðvapróf, til að stuðla að jafnvægi
yin/yang.
Vitaflex (Vitality Through The Reflexis)
Vitaflex er sérstök aðferðafræði
upprunnin í Tíbet. Ákveðinni handartækni er
beitt við meðferðina þar sem fingrunum er “rúllað og
smellt” í þeim tilgangi að örva spennu og rafboð í
gegnum viðbragðssvæði um allan líkamann. Ein og sér er
aðferðin áhrifarík en þar sem einnig er notast við
ilmolíur verða áhrifin en kröftugri. Hægt
er að beita aðferðinni á mismunandi líffærakerfi.
NAT (Neuro Auricular Technique)
NAT er ákveðin aðferð sem framkvæmd er
á svæði hálsliða og höfuðkúpu þar sem glerpinni er
notaður ásamt sex mismunandi ilmolíum í þeim tilgangi
að örva og virkja allar taugar og taugamót
sem liggja um höfuðið. Efnasamböndin í olíunum
ásamt taugaörvuninni geta haft góð áhrif
á allt taugakerfið. Meðferðin eykur blóðflæði og
súrefnisupptöku og hefur þar af leiðandi bætandi áhrif
á alla líffærastarfssemi í höfðinu.
Ilmolíunudd
Ilmkjarnaolíur eru öflugar gegn ýmsum
kvillum, hafa jákvæð áhrif bæði á líkama og sál og
nýtast mjög vel með öllum nuddtegundum.
Regndropameðferð
Regndropameðferð er sérstök
olíusmurning á bak og fætur með
ilmkjarnaolíum. Meðferðin er ekki hefðbundið
nudd en dregur nafn sitt af því að
níu kraftmiklar ilmkjarnaolíur eru látnar drjúpa eins
og regndropar á bakið. Olíunum er einnig smurt á bak
og fætur eftir ákveðnu kerfi. Þessi meðferð er
mjög styrkjandi og hreinsandi, vírus og
bakteríueyðandi góð fyrir vöðva og stoðkerfið, losar
um bólgur og sársauka og veitir djúpa slökun.
Klassískt nudd
Klassískt nudd miðar að því að mýkja
vöðva og örva blóðrás, hentar vel við þreytuverkjum
og þegar nuddþegi vill fá frískandi nudd.
Partanudd
Nudd vegna staðbundinna óþæginda svo
sem í baki, herðum, hálsi o.s.frv.
Gjafakort - gjöf sem gleður
Hægt er að fá gjafakort í heilsunudd
hjá Margréti fyrir ákveðna upphæð eða tiltekna
meðferð.