Margrét1

Margrét Jónsdóttir

Naturópati, heilsunuddari og ilmolíufræðingur. 

Margrét hefur lokið námi í náttúrulækningum (naturopathy) frá Heilsumeistaraskólanum en hún var í hópi fyrstu nemenda sem luku náminu í júlí 2010.  Námið er alþjóðlega viðurkennt nám og nemendur fá Naturopathic Diploma (ND).  Hér á landi er námið viðurkennt sem þriggja ára nám í heildrænum meðferðum, frá Menntamálaráðuneytinu. 

Meðal námsgreina eru: Alþýðugrasalækningar, heilsumeistarafræði (naturopathy), augnfræði (iridology & sclerology), sjálfsrækt, heilandi fæði og næring, blómadropar, ilmkjarnaolíur, lífsstíll ofl.  Heilsumeistaranámið gengur út á náttúrulegar- og heildrænar meðferðir í heilsuvernd án inngripa lyfja og skurðaðgerða. Áhersla er lögð á að hver og einn taki ábyrgð á eigin heilsu og lífsstíl með heilbrigðri og skynsamlegri  næringu og hreyfingu.

Margrét útskrifaðist sem heilsunuddari frá Nuddskóla Íslands vorið 2004,  með prófi í eftirfarandi greinum (nuddi): Klassísku vöðvanuddi, heildrænu nuddi, svæðanuddi (reflexology), sérhæfðum vöðvateygjum og íþróttameiðslum, íþróttanuddi, vöðva- og hreyfifræði (kinesiology) og ilmolíu- og sogæðanuddi.  Stundaði tveggja ára bóklegt nám á nuddbraut Heilbrigðisskólans við Fjölbrautaskólann í Ármúla, 2002 - 2004.

Hún nam ilmkjarnaolíufræði hjá Dr. Erwin Haringer, Margréti Demleitner og Selmu Júlíusdóttur í Lífsskólanum, nú Aromatherapyskóli Íslands, 1999-2002.

Hún er í Félagi íslenskra heilsunuddara, FÍHN, Aromatherapyfélag Íslands, ATFÍ, Félag lithimnufræðinga, FL og í Bandalagi íslenskra græðara (BÍG).

Áður starfaði Margrét sem myndlistakennari en hún útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989. 

Tímapantanir í síma: 863-3563, 511-1000. 
Netfang: magga@emax.is 


Forföll skulu tilkynnt með minnst sólarhrings fyrirvara.

Lesa meira.

Verðskrá
Heilsunudd 60 mín.:
 kr. 6.200
Heilsunudd 90 mín.: kr. 7.500

Innifalið í öllum nuddmeðferðum Margrétar eru ilmkjarnaolíur.